Lómasalir 2, 201 Kópavogur
61.500.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
83 m2
61.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2003
Brunabótamat
43.080.000
Fasteignamat
64.900.000

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir vel skipulagða tveggja herbergja íbúð  á þriðju hæð að Lómasölum 2 í Kópavogi. Eignin er samkvæmt þjóðskrá 83,1 fermetrar þ.e. íbúðin er 73,4 fm og geymsla 9,7 fm, íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðu bílahúsi. Samþykkt hefur verið að leggja grunnnet fyrir rafbílahleðslu í bílageymslu og standa framkvæmdir yfir.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol:  parketlögð og með fataskápum.

Eldhús: er opið í stofu, með vandaðri viðarinnréttingu parket á gólfi.

Stofa: rúmgóð, björt og parket á gólfi, gengt er út á suðvestur svalir, svala gólf er flísalagt og hitalampi er á svölum.

Svefnherbergi: er rúmgott, með fataskápum og parket á gólfi.

Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, sturta og vönduð viðarinnrétting.

Þvottahús: er innan íbúðar, innrétting er í þvottahúsi, flísar á gólfi.

Í kjallara er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla og bílastæði í lokaðri bílgeymslu.

Stutt er í skóla og leikskóla, matvöruverslun og sundlaug. Golfvöllur er steinsnar frá. 

Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 898-3459 eða Sigrúnu Stellu Einarsdóttur löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

Vegna mikillar sölu vantar Fasteignamiðlun Grafarvogs eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið sölumat ykkur að kostnaðarlausu.

Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
https://www.facebook.com/fmg.is/
www.fmg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren og skólp.          

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.