Sveighús 10, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
131.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
220 m2
131.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
108.950.000
Fasteignamat
135.700.000



Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir einbýlishús að Sveighúsum 10, 112 Reykjavík, eign er merkt 01-0101, fastanúmer 204-1270, birt stærð eignar er 220,9 fm, birt stærð íbúðar 187 fm og birt stærð bílskúrs 33,9 fm. Húsið stendur fyrir ofan götu og er byggt á þremur pöllum. Húsið er vel staðsett í grónu hverfi og útsýni er mikið.

Nánari lýsing:
Húsið er byggt á þremur  pöllum

Á palli 1 á jarðhæð er forstofa, eitt svefnherbergi, stúdíó íbúð og bílskúr.
Forstofa er flísalögð, gengið er úr forstofu inn í herbergið á jarðhæð. Stúdíó íbúðin eru björt og þar er baðherbergi. Bílskúr er 33,9 fm með innkeyrslu og umgöngu dyrum.

Á palli 2 eru borðstofa, eldhús, búr, baðherbergi og eitt svefnherbergi.
Eldhús er með ljósri innréttingu og borðkrók, harðparket er á eldhúsi. Búr/þvottahús er innaf eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt með baðkari og sturtu, innréttingu við vask og opnanlegum glugga. Svefnherbergi er bjart og rúmgott með skápum og harðparketi á gólfi.

Á palli 3 er stofa og tvö svefnherbergi.
Stofa er björt og rúmgóð. Gengt er úr stofu út á stórar suðursvalir. Herbergin eru björt og rúmgóð, harðparket er á stofu og svefnherbegjum á þriðja palli,

Stutt er í leikskóla, skóla og  sundlaug og íþróttamiðstöð í hverfinu. Verslanir og þjónustu eru í Spönginni og golfvellir eru steinsnar frá í Grafarholti og á Korpúlfstöðum.

Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 898-3459 eða Sigrúnu Stellu Einarsdóttur löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

Vegna mikillar sölu vantar Fasteignamiðlun Grafarvogs eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið sölumat ykkur að kostnaðarlausu.

Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
https://www.facebook.com/fmg.is/
www.fmg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren og skólp.          

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.