Ljósheimar 6, 104 Reykjavík (Vogar)
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
105 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
52.050.000
Fasteignamat
68.500.000

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja endaíbúð  á 7. hæð að Ljósheimum 6 í Reykjavík. Eignin er samkvæmt þjóðskrá 105,8 fermetrar. Eignin er í grónu hverfi, stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla, heilsugæslu og verslanir. Mikið útsýni er úr íbúðinni en hún er í suðurenda hússins. Íbúðin hefur tvennar svalir. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð með fatahengi, korkflísar á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, tengt er fyrir uppþvottavél í eldhúsi, korkflísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, gengt er út á vestur svalir úr stofu, parket er á gólfi.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með skápum, parket á gólfi, gengt er út á vestursvalir úr hjónaherbergi.
Barnaherbergin eru ekki stór en björt og með fataskápum og parketi á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu klósetti, innréttingu og sturtu, tengt er fyrir þvottavél á baði. Baðherbergið er með glugga.
í sameign er sér geymsla, hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.


Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 898-3459, Sigrúnu Stellu Einarsdóttur löggiltan fasteignasala á [email protected] og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

Fasteignamiðlun Grafarvogs vantar eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið sölumat ykkur að kostnaðarlausu.
Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu.

Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
https://www.facebook.com/fmg.is/
www.fmg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp. 





 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.