Opið hús: 05. desember 2024 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Skógarás 1, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01-0301. Eignin verður sýnd Fimmtudaginn 5.desember 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Hafið samband við Önnu í S. 892 8778
[email protected] eða Ingunn í S.612 0906
[email protected]
Rúmgóð og björt 168,1 fm. íbúð á 2 hæðum við Skógarás 1, 110 Reykjavík. Í dag skiptist eignin í 5 herbergja íbúð á neðri hæð og 3ja herbergja íbúð á efri hæð en ganga þarf í gegnum neðri hæðina til að komast á efri. Eignin er í dag í útleigu og gefur góðar leigutekjur. Mjög fallegt útsýni yfir borgina og til fjalla er úr íbúðinni. Hús lítur vel út og skv. seljanda var þak nýlega endurnýjað. Fasteignamat 2024 er 90.400.000 kr. Eignin getur verið laus mjög fljótlega.Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali sími: 892-8778, [email protected] og Ólafur Kristjánsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 786-1414, tölvupóstur [email protected].Neðri hæð:Anddyri með góðum skápum. Dúkur á gólfi.
Parketlagður gangur/hol.
Stofa er opin og björt með stórum gluggum og útgengi á góðar suðursvalir með glæsilegu útsýni. Búið er að stúka af herbergi innaf stofu.
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, góðu vinnuplássi og steinplötu. Innbyggð uppþvottavél. Ísskápur fylgir. Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum.
Svefnerbergi II er þokkalega rúmgott.
Svefnherbergi III er lítið en bjart með flottu útsýni til sjávar.
Svefnherbergi IV er innaf stofu. Ágætlega rúmgott.
Efri hæð:Nýtist í dag sem sér íbúð.
Gengið er upp parketlagðan stiga.
Eldhús og stofa/sjónvarpsrými er í opnu rými.
Rúmgott baðherbergi. Flísar á gólfi. Góður sturtuklefi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi.
Góð lofthæð og ekki mikið undir súð.
Lóðin er eignarlóð.
Meirhluti innbús má fylgja kaupunum eftir samkomulagi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% hjá einstaklingum, 1.6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar eru almennt 45-100 þús.kr. Nánari upplýsingar um öll húsnæðislán á Íslandi eru borin saman á herborg.is.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu fyrir kaupendur eru 74.400 kr. með virðisaukaskatti.
Vegna mikillar sölu vantar Fasteignamiðlun Grafarvogs eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið frítt sölumat og skoðun á ykkar eign.
Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu FRÍTT sölumat. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
Heimsækið okkur á Facebook.